Já, það er margt sem gerist í "sveitinni" sem gerist ekki annars
staðar. Í gærkveldi sat ég í makindum upp í sófa. Það er svosum
ekki frásögu færandi nema hvað allt í einu heyrði ég hófatak. Ég
áttaði mig ekki fyrr en Berglind öskraði "hestar!!" og ég hrökk upp
og sá ca. 5-6 hesta tölta niður Dísarásinn og upp næstu götu. Mjög
undarlegt verð ég að segja og frekar fyndið. Þeim hefur örugglega
leiðst í hesthúsunum og ákveðið að kíkja í bæinn!
Jahá, það er gott að búa í Árbænum 